Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna Viskubrunns

Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvaða persónuupplýsingar Viskubrunnur (viskubrunnur.net) vinnur, í hvaða tilgangi, hverjir fá þær, hve lengi þær eru geymdar og hvaða réttindi þú hefur. Hún er skrifuð fyrir kennara og stjórnendur sem nota þjónustuna, og fyrir skóla og sveitarfélög sem kaupa skólaáskrift.

1. Ábyrgðaraðili

Kunnátta ehf., kt. 590624-0120, Reynilundur 2, 600 Akureyri, netfang kunnatta@kunnatta.is, rekur Viskubrunn.

Ef þú ert með einstaklingsáskrift er Kunnátta ehf. ábyrgðaraðili vinnslunnar. Ef þú notar Viskubrunn í gegnum skólaáskrift er skólinn eða sveitarfélagið sem keypti áskriftina ábyrgðaraðili þeirra upplýsinga sem þú vinnur með í starfi, og Kunnátta ehf. vinnsluaðili þess samkvæmt vinnslusamningi. Þessi stefna lýsir vinnslunni í báðum tilvikum.

2. Hvaða upplýsingar við vinnum

Reikningsupplýsingar. Nafn, netfang, lykilorð (geymt sem tætigildi), skóli, áskriftarstaða. Frá þér við skráningu, eða frá skólanum þínum við skólaáskrift.

Efni sem þú setur inn og færð til baka. Texti sem þú skrifar, skjöl og myndir sem þú hleður upp, og það sem verkfærin búa til fyrir þig. Frá þér.

Upplýsingar um aðra sem þú nefnir. Til dæmis nafn nemanda í umsögn, verk nemanda í ritunargreiningu eða efni bréfs til forráðamanna. Þjónustan biður ekki um slíkar upplýsingar; þú ræður hvað þú setur inn. Frá þér.

Notkunartölur. Fjöldi orða og mynda sem þú hefur notað, hvenær og hvaða verkfæri. Verður til við notkun.

Greiðsluupplýsingar. Einstaklingsáskrift: greiðsla fer um Askell ehf.; við geymum ekki kortaupplýsingar. Skólaáskrift: reikningur á skólann. Frá þér eða skólanum.

Google-tengingar. Tímabundin aðgangsheimild ef þú velur að vista í Google Drive eða búa til Google Forms, sjá 10. kafla. Frá Google með þínu samþykki.

Tæknilegar upplýsingar. IP-tala, vafri og tímasetningar í kerfisskrám, til að greina bilanir og verjast misnotkun. Verður til við notkun.

3. Upplýsingar um nemendur

Viskubrunnur er verkfæri kennarans, ekki nemendakerfi. Engin verkfæri biðja um nafn eða kennitölu nemanda nema Umsagnir, þar sem nafnið er hluti af umsögninni sem þú þarft. Einstaklingsnámskrá safnar hvorki nafni né kennitölu og vistar ekkert. Þú getur samt nefnt nemendur í opnum texta, og þá gilda sömu reglur um þær upplýsingar og annað efni: þær eru sendar til undirvinnsluaðila til úrvinnslu, geymdar í mest 30 daga og ekki notaðar í öðrum tilgangi.

Við biðjum þig að setja ekki inn meira um nemendur en verkefnið krefst, og alls ekki upplýsingar um greiningar eða heilsufar nema það sé óhjákvæmilegt fyrir verkið. Í skólaáskrift ber skólinn ábyrgð á að fræða starfsfólk um þetta; verkfærin minna líka á það þar sem það á við.

4. Tilgangur og lagagrundvöllur

  • Að veita þjónustuna sem þú eða skólinn þinn hefur samið um: efnið þitt er sent til gervigreindarlíkans, niðurstaðan birt þér og geymd í 30 daga svo þú getir sótt hana aftur. Grundvöllur: samningur (einstaklingsáskrift) eða lögbundið hlutverk skólans (skólaáskrift).

  • Að reka reikninginn þinn: innskráning, áskrift, notkunartölur, tilkynningar um breytingar á þjónustunni. Grundvöllur: samningur.

  • Að tryggja öryggi og bregðast við bilunum: kerfisskrár, læsing eftir endurteknar rangar innskráningar. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir okkar af því að reka örugga þjónustu.

  • Að uppfylla lagaskyldur, til dæmis bókhaldslög vegna reikninga. Grundvöllur: lagaskylda.

Við notum upplýsingarnar þínar ekki í markaðssetningu til þriðju aðila og ekki til að þjálfa gervigreindarlíkön. Við sendum notendum stöku sinnum tölvupóst um nýja eiginleika og þjónustu sem fylgir áskriftinni, um póstlistaþjónustuna MailerLite. Í hverjum pósti er hægt að afþakka frekari póst. Við sendum ekki tilboð eða auglýsingar um aðrar vörur til notenda í skólaáskrift.

5. Hverjir fá upplýsingarnar

Við seljum ekki og leigjum ekki persónuupplýsingar. Þær fara aðeins til aðila sem vinna fyrir okkur við að veita þjónustuna, samkvæmt samningi sem bindur þá við sömu skyldur og okkur:

  • 1984 ehf., Ísland: hýsing og geymsla allra gagna.

  • Anthropic, OpenAI Ireland Ltd. og Google: gervigreindarlíkönin sem vinna úr efninu þínu. Þau fá það efni sem þú setur inn í hvert skipti, ekki reikningsupplýsingarnar þínar.

  • Askell ehf., Ísland: greiðslur vegna einstaklingsáskrifta.

  • Google, að þínu vali, þegar þú vistar í Google Drive eða býrð til Google Forms á eigin reikningi.

Gildandi listi með hlutverki hvers aðila, staðsetningu og grundvelli flutnings er á síðunni Undirvinnsluaðilar. Að öðru leyti afhendum við persónuupplýsingar aðeins ef lög skylda okkur til þess.

Þegar síða í Viskubrunni opnast sækir vafrinn þinn einnig skrár frá eftirtöldum aðilum, sem fá þá IP-tölu þína og upplýsingar um vafrann: Google Fonts (leturgerðir, á öllum síðum), jsDelivr, cdnjs og code.jquery.com (kóðasöfn, á innskráðum síðum og í sumum verkfærum), innskráningarþjónusta Google (accounts.google.com, á innskráðum síðum) og Umami (heimsóknatalning). Við notum þessar þjónustur vísvitandi; þær fá engar aðrar upplýsingar um þig eða efni þitt.

6. Flutningur út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Gögn eru geymd á Íslandi. Gervigreindarlíkönin eru rekin af aðilum í Bandaríkjunum eða á innviðum þar. Flutningur til þeirra byggist á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd samkvæmt rammanum um persónuvernd milli ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework) þar sem aðilinn er vottaður, og annars á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnarinnar.

7. Gervigreindin

  • Efnið þitt er sent um forritaskil (API) til líkansins. Samkvæmt skilmálum forritaskilanna er það ekki notað til að þjálfa líkön og er eytt hjá þeim innan 30 daga.

  • Það sem líkanið býr til eru drög handa þér. Þú lest yfir, breytir og ákveður. Viskubrunnur tekur engar sjálfvirkar ákvarðanir um fólk.

  • Hæfniviðmið sem verkfærin vísa í eru sannreynd gegn aðalnámskrá í kerfinu áður en þau birtast þér.

8. Hve lengi við geymum upplýsingar

Efni sem þú setur inn og færð til baka, þar með talin skjöl, myndir og spjallsaga: Eytt sjálfkrafa 30 dögum eftir að það varð til. Þú getur eytt fyrr sjálf/ur.

Einstaklingsnámskrá: Ekki vistuð. Hún hverfur þegar þú lokar vinnulotunni.

Reikningsupplýsingar: Meðan aðgangurinn er til. Þegar áskrift lýkur, einnig skólaáskrift, heldur aðgangurinn áfram sem gjaldfrjáls aðgangur. Aðgangi sem enginn hefur skráð sig inn á í þrjú ár er eytt ásamt öllu sem honum fylgir, eftir viðvörun í tölvupósti 30 dögum fyrr. Óskir þú eyðingar fyrr gerum við það innan 7 daga. Greiðsluupplýsingar eru varðveittar í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald.

Afrit hjá hýsingaraðila: 30 dagar. Efni sem hefur verið eytt getur því verið til í afriti í allt að 30 daga eftir eyðingu.

Kerfisskrár: Takmarkaður tími í öryggisskyni; innihalda ekki efnið þitt.

Reikningar og greiðslur: Samkvæmt bókhaldslögum.

9. Öryggi

Öll samskipti eru dulkóðuð (TLS). Lykilorð eru geymd sem tætigildi og verða ekki endurheimt. Innskráning læsist tímabundið eftir endurteknar rangar tilraunir. Þú sérð aðeins þitt eigið efni. Aðgangur starfsmanna Kunnáttu að kerfinu er bundinn við þá sem reka það. Hýsing og afrit eru á Íslandi. Nánari lýsing er í viðauka 3 við vinnslusamninginn.

Verði öryggisbrestur sem varðar þínar upplýsingar tilkynnum við hann Persónuvernd og þér, eða skólanum þínum, eins og lög krefjast.

10. Google-tengingar

Sum verkfæri bjóða þér að vista niðurstöðu í Google Drive eða búa til Google Forms. Google kemur við sögu á þrennan hátt: ef þú velur að skrá þig inn með Google-reikningi eða flytja efni út á Google Drive, Docs eða Forms; ef þú notar verkfæri sem byggir á gervigreind Google (Gemini); og með því að innskráningarforrit Google og leturgerðir Google hlaðast þegar síður opnast, en þá fær Google aðeins IP-tölu þína og upplýsingar um vafrann. Við biðjum um þrengstu heimildir sem völ er á: að búa til skjöl (documents), að búa til og breyta Forms (forms.body) og að vista skrár sem þjónustan bjó til sjálf (drive.file). Þjónustan sér ekki önnur skjöl á Drive þínu.

  • Aðgangsheimildin er tímabundin og rennur út innan klukkustundar. Við biðjum ekki um varanlega heimild og fáum því engan endurnýjunarlykil.

  • Fyrir Google Forms er heimildin geymd í vafranum þínum og fer aldrei um netþjón okkar. Fyrir Google Docs og Drive er hún geymd í innskráningarlotu þinni á netþjóni meðan þú ert innskráð/ur, aldrei í gagnagrunni.

  • Skjölin verða til á þínum Google-reikningi. Við geymum engin afrit af þeim.

  • Þú getur afturkallað heimildina hvenær sem er í öryggisstillingum Google-reikningsins. Tengigögn eru eytt innan 7 daga frá afturköllun eða beiðni.

Notkun Viskubrunns á upplýsingum úr Google-forritaskilum fylgir Google API Services User Data Policy, þar með talið kröfum um takmarkaða notkun (Limited Use).

11. Vafrakökur og geymsla í vafra

Við teljum heimsóknir með Umami, sem notar engar vafrakökur, geymir ekki IP-tölur og getur ekki rakið einstaka notendur. Engin auglýsinga- eða rakningarforrit eru notuð. Eftirfarandi er notað svo þjónustan virki:

  • Lotukaka (innskráning) sem hverfur þegar þú skráir þig út eða lokar vafranum.

  • SID og UID: muna innskráninguna þína á þessu tæki í allt að ár.

  • DVK: auðkennir tæki sem þú hefur staðfest, ef staðfesting nýrra tækja er virk, í allt að ár.

  • REF: skráir í 30 daga hvaðan þú komst ef þér var vísað á Viskubrunn með tilvísunarslóð.

  • Geymsla í vafra (localStorage) fyrir þægindi sem þú velur sjálf/ur, til dæmis að muna samsetningu bekkjar í Allir með eða hvaða flipa þú notaðir síðast. Þetta fer aldrei á netþjón og þú getur hreinsað það í vafranum.

12. Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, flutningi gagna og að andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum. Efninu þínu getur þú eytt sjálf/ur í þjónustunni hvenær sem er. Aðrar beiðnir sendir þú á kunnatta@kunnatta.is og við svörum innan mánaðar.

Ef þú notar Viskubrunn í gegnum skólaáskrift beinir þú beiðnum um upplýsingar sem varða starf þitt til skólans þíns, sem er ábyrgðaraðili; við aðstoðum hann við að svara. Beiðnir nemenda og forráðamanna fara alltaf til skólans.

Þú getur kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is, ef þú telur að vinnslan brjóti gegn lögum. Okkur þætti vænt um að heyra fyrst frá þér.

13. Breytingar á stefnunni

Við breytum stefnunni þegar þjónustan breytist, til dæmis þegar undirvinnsluaðila er bætt við. Um efnislegar breytingar látum við vita með tölvupósti eða tilkynningu í þjónustunni með 30 daga fyrirvara. Gildandi útgáfa er alltaf hér.

14. Hafðu samband

Kunnátta ehf., kunnatta@kunnatta.is.


Síðast uppfært: 9. nóvember 2026