Persónuvernd í Viskubrunni – þjónustulýsing

Frá 8. desember 2026 gilda almennir vinnsluskilmálar Kunnáttu um vinnslu persónuupplýsinga fyrir skóla og sveitarfélög með skólaáskrift að Viskubrunni, ásamt þessari þjónustulýsingu. Þeir koma í stað fyrri vinnslusamnings á þessari síðu.

Atriði
ÞjónustaViskubrunnur (viskubrunnur.net): gervigreindartól fyrir kennara
VinnsluaðiliKunnátta ehf., kt. 590624-0120
Gildir frá8. desember 2026

Þessi lýsing segir hvaða persónuupplýsingar eru unnar í Viskubrunni, hvers vegna, hvernig þær eru varðar og hvaða réttindi þú átt. Hún er hluti af almennum vinnsluskilmálum Kunnáttu, sem binda Kunnáttu gagnvart skóla eða sveitarfélagi með skólaáskrift.

Viskubrunnur er vefþjónusta fyrir kennara og skólastjórnendur: um 30 verkfæri og hátt í 70 sniðmát sem nota gervigreind til að aðstoða við undirbúning kennslu, námsefni, námsmat og samskipti. Notendur eru fullorðnir. Nemendur nota ekki Viskubrunn.

1. Hver ber ábyrgð?

ÁskriftÁbyrgðaraðiliKunnátta
Skólaáskrift (skóli eða sveitarfélag)Skólinn eða sveitarfélagið, fyrir upplýsingar sem kennarar vinna með í starfiVinnsluaðili samkvæmt vinnsluskilmálunum
Einstaklingsáskrift eða gjaldfrjáls aðgangurKennarinn fyrir efni sem hann setur innÁbyrgðaraðili reiknings og greiðslna

Skólaáskrift telst samþykkja vinnsluskilmálana við pöntun. Skóli sem þarf undirritað eintak getur fengið það.

2. Hvaða upplýsingar eru unnar?

UpplýsingarUm hverja
Nafn, netfang, lykilorð (geymt sem tætigildi), skóli, áskriftarstaða, notkun orða og myndaNotendur
Texti, skjöl og myndir sem notandi setur inn, og það sem verkfærin búa tilNotendur, og aðrir sem notandi nefnir
Í Umsögnum: nafn nemanda, kyn, bekkur og athugasemdir kennaraNemendur
Í ritunar- og prófagreiningu: verk nemenda og greiningNemendur
Misheppnaðar innskráningar: netfang, IP-tala, tímiNotendur
Greiðslur einstaklingsáskrifta, um AskellNotendur

Upplýsingar um nemendur. Viskubrunnur er verkfæri kennarans, ekki nemendakerfi. Ekkert verkfæri biður um kennitölu. Einstaklingsnámskrá safnar hvorki nafni né kennitölu og vistar ekkert. Umsagnir eru eina verkfærið sem biður um nafn nemanda, því að nafnið er hluti umsagnarinnar. Kennari getur nefnt nemendur í opnum texta; þá gilda sömu reglur um það og annað efni.

Þetta á ekki heima í Viskubrunni: kennitölur, og greiningar eða heilsufarsupplýsingar um nemendur nema verkið krefjist þess óhjákvæmilega. Skólinn ber ábyrgð á að fræða kennara um þetta (3. kafli vinnsluskilmálanna), og verkfærin minna á það þar sem við á.

3. Tilgangur

Að veita þjónustuna (efni sent til gervigreindar og niðurstaðan birt notanda), að reka reikninga og áskriftir, að senda notendum tilkynningar um nýja eiginleika og þjónustu sem fylgir áskriftinni (2.4 í vinnsluskilmálunum), öryggi og bilanagreining, og lagaskyldur um bókhald.

4. Gervigreind

  • Efni sem notandi setur inn er sent til gervigreindar (Claude frá Anthropic, Gemini frá Google eða GPT frá OpenAI, eftir verkfæri) og niðurstaðan birt honum.
  • Gervigreindin fær ekki reikningsupplýsingar notanda, aðeins efnið sem hann setur inn hverju sinni.
  • Veitendurnir nota efnið hvorki til að þjálfa né bæta líkön sín. Þeir geyma það í allt að 30 daga til að greina misnotkun. Efnið getur verið unnið í Bandaríkjunum; grundvöllurinn er á lista undirvinnsluaðila.
  • Úttak gervigreindar eru drög sem kennarinn les yfir og ber ábyrgð á. Viskubrunnur tekur engar ákvarðanir um fólk.

5. Hver sér hvað?

HlutverkSér
NotandiEigið efni og eigin reikning
Kerfisstjóri KunnáttuNotendur (nafn, netfang), áskriftir og greiðslur. Stjórnborðið sýnir ekki efni notenda.

6. Öryggi

Almennum ráðstöfunum er lýst á kunnatta.is/personuvernd/oryggi. Í Viskubrunni sérstaklega: lykilorð geymd sem tætigildi; innskráningu læst tímabundið eftir endurteknar rangar tilraunir; lotukökur með HttpOnly, Secure og SameSite; Google-heimildir þær þrengstu sem völ er á (aðeins skjöl sem Viskubrunnur býr til sjálfur) og ekki geymdar í gagnagrunni.

7. Hve lengi eru upplýsingarnar geymdar?

UpplýsingarGeymslutími
Efni notenda og það sem verkfærin búa til, þar með talið Umsagnir og greiningarEytt sjálfkrafa 30 dögum eftir að það varð til
EinstaklingsnámskráEkki vistuð
Aðgangur notandaMeðan hann er til. Við lok áskriftar, líka skólaáskriftar, heldur hann áfram sem gjaldfrjáls aðgangur og kennara er tilkynnt það; skóli getur óskað eyðingar. Aðgangi sem enginn hefur skráð sig inn á í þrjú ár er eytt ásamt öllu sem honum fylgir, eftir viðvörun í tölvupósti 30 dögum fyrr
Misheppnaðar innskráningar, leitarbeiðnir og greiðslutilkynningar í kerfisskrám90 dagar
Greiðsluupplýsingar7 ár (lög um bókhald)
Öryggisafrit30 dagar

8. Hverjir fá upplýsingarnar?

ViðtakandiHvað
1984 ehf.Hýsing og geymsla allra gagna á Íslandi
Anthropic, Google, OpenAIEfni sem notandi sendir gervigreind, sjá 4. kafla
MailgunTölvupóstur frá kerfinu (netfang, nafn, efni pósts)
MailerLiteNafn og netfang, fyrir tilkynningar um þjónustuna; hægt að afþakka í hverjum pósti
Askell ehf.Greiðslur einstaklingsáskrifta
Google (Drive, Docs, Forms)Að vali notanda, efni sem hann flytur út á eigin Google-reikning

Nánar á lista undirvinnsluaðila Kunnáttu. Kunnátta selur aldrei eða afhendir upplýsingar til annarra.

9. Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, flutningi gagna og að andmæla vinnslu, að því marki sem lög kveða á um. Efni þínu getur þú eytt sjálf/ur í þjónustunni hvenær sem er. Í skólaáskrift fara aðrar beiðnir til skólans; annars til Kunnáttu á kunnatta@kunnatta.is, og þeim er svarað innan 7 daga.

Ef þú telur að brotið hafi verið gegn rétti þínum getur þú kvartað til Persónuverndar.

10. Tengiliðir

Tengiliðir Kunnáttu og persónuverndarfulltrúa hennar eru í 14. kafla vinnsluskilmálanna.